Gjafabréf
Gjafabréf í hundaskólann
Tilvalið að gefa góðar venjur og þjálfun í gjöf handa hundanördinum. Hægt er að velja upphæð sem hentar og getur þá handhafi notað það sem inneign á öll námskeið hjá okkur. Einnig er hægt að gefa t.d. grunnnámskeið, táninganámskeið, eða Nosework námskeið já eða einkatíma og lífsleikni ef hundurinn er með vandamál sem þarf að vinna með. Það þarf ekki að panta námskeiðið sérstaklega heldur getur handhafi pantað það þegar hentar enda gildir gjafabréfið í 1 ár. Ekki er hægt að fá gjafabréf endurgreitt en það má selja það áfram á annan aðila gegn því að þið látið okkur vita um nýjan handhafa.
Eigandi
Þórhildur Kristjánsdóttir
Hundaþjálfari, NoseWork, Sporaleit og atferlisráðgjafi.
Það er eitthvað ólýsanlegt við tenglsin sem myndast milli manns og hunds.
Hundar eru ekki bara félagar - þeir eru fjölskyldumeðlimir, börnin okkar, vinir og stundum okkar bestu kennarar.
Hundaþjálfari og hvolpamamma skólans
Villa Birgisdóttir
Að vinna með hundum snýst um að skilja þá, byggja upp traust og hjálpa þeim að finna sinn stað í fjölskyldunni og samfélaginu.
Hundaþjálfari
Alexandra Sól Jóhannsdóttir
Fyrir mér er ekkert meira gefandi en að aðstoða eigendur að takast á við áskoranir og sjá hundinn öðlast sjálfstraust, ró og blómstra vegna rétts uppeldis og þjálfunar.
Hundaþjálfaranemi
Valdís Rós Bjarnadóttir
Hundar geta bætt líf okkar á svo marga vegu, þeir kenna okkur þolinmæði og skilyrðislausa ást og trúi ég því að við eigum að gera það sama fyrir þá.