hundaakademian
Grunnnámskeið
Grunnnámskeið
Grunnur að góðu samstarfi
Grunnnámskeiðið hentar bæði hvolpum og eldri hundum sem vilja byggja upp rólegra og skemmtilegra samstarf í daglegu lífi.
Við mælum með að byrja snemma með hvolpa, en námskeiðið hentar hundum á öllum aldri og af öllum stærðum. Allir hundar fá sitt eigið rými til að vinna á með sínu fólki og öll fjölskyldan er velkomin með.
Kennt er með jákvæðum aðferðum sem byggjast á nýjustu rannsóknum á atferli og líðan hunda.
Share

Hentar vel ef....
-
Þú vilt byggja góðar venjur frá byrjun
-
Þú vilt skilja hvolpinn þinn betur
-
Þú vilt rólegra og skemmtilegra samstarf
-
Þú vilt sterkari tengsl við hundinn þinn
-
Þú vilt meiri ró í daglegu lífi
Næstu grunnnámskeið
-
Grunnnámskeið er 2x í viku í 8 skipti (4 vikur)
8. júní - mán/mið kl. 20
16. júní - þri/fim kl. 17
6. júlí - mán/mið kl. 18 & kl. 19
21.júlí - þri/fim kl. 18
10. ágúst - mán/mið kl. 17 / 18 / 19
7. september - mán/mið kl. 17 & kl. 18
22. september - þri/fim kl. 19 & kl. 20
Myndband af grunnnámskeiðinu
Upplýsingar um námskeið
Hvað er kennt á námskeiðinu?
Á grunnnámskeiðinu kennum við helstu hlýðniæfingar: sitja, liggja, kyrr, hælganga, innkall, augnsamband, vera kurteis, láta vera, sleppa dóti, taumganga og það mikilvægasta af öllu er merkjamálið hjá hundunum.
Hvaða þjálfunaraðferðir eru notaðar?
Við notum eingöngu jákvæðar og refsilausar aðferðir í skólanum. Við leggjum áherslu á að hundinum líði alltaf vel og læri á sínum hraða. Hvað er jákvæð þjálfun: Jákvæð hundaþjálfun byggir á því að styrkja það sem hundurinn gerir rétt, í stað þess að refsa fyrir mistök. Með notkun verðlauna eins og matarbita, leikja eða hrósa lærir hundurinn að tengja góða hegðun við jákvæða upplifun. Þannig eykst vilji hans til að endurtaka góðu hegðunina og sambandið milli hunds og eiganda verður traustara og jákvæðara.
Má fjölskyldan koma með á námskeiðið?
Já, fjölskyldan er velkomin með, hver hundur fær sér lokað hólf til að þjálfa í, þar er gott pláss fyrir 3-4 manneskjur með hundinum. Við mælum með því að fjölskyldan komi með og allir æfi sig í að þjálfa með hundinum, þá fá líka allir tækifæri til að spyrja þjálfarann.
Afhverju að koma líka í krílahvolpatíma?
Krílahvolpatímar er fyrir alla hvolpa frá ca 9 til 16 vikna.
Félagsmótunarskeið hvolpa er milli 3 og 12 vikna. Þá þurfa þeir að upplifa flest allt sem á að vera eðlilegt í þeirra lífi. Þess vegna veljum við að byrja snemma með þjálfun og krílatímarnir ná því inn á þetta tímabil ef þið mætið snemma með þá.
Vissir þú að það mikilvægasta sem þú gerir með hvolpinum og það fyrsta sem þú átt að spá í er umhverfisþjálfun? Ungir hvolpar þurfa að upplifa eitthvað nýtt á hverjum degi og allt þarf að vera jákvætt, skemmtilegt og ekki of mikið af því góða í einu.
Þarna læra þeir aðeins meira inn á lífið, læra að leika aðra hvolpa sem og slaka á. Þeir fá þannig góða umhverfisþjálfun sem gerir þá öruggari með sig og minnkar líkurnar á hræðslu í framtíðinni (minna gelt).
Grunnnámskeið veitir afslátt af hundaleyfisgjöldum
Grunnnámskeiðið hjá okkur veitir afslátt af hundaleyfisgjöldum í Reykjavík og fleiri sveitarfélögum, það getur verið mismunandi á milli sveitarfélaga. Þetta námskeið er með námsefni sem samsvarar 16 klst, þið þurfið að klára bóklegt verkefni ásamt því að hundurinn þarf að geta framkvæmt fimm hegðanir í lok námskeiðs, mætingarskylda er 80%
Netnámskeið - Uppeldi hvolpa
Að taka á móti hvolpi er einstakt ævintýri – fullt af gleði, hlátri og nýjum uppgötvunum. En það fylgir líka áskorun: hvernig á ég að kenna litla hvolpinum að fóta sig í heiminum?
Til að gera ferðalagið auðveldara setti ég saman Uppeldi hvolpa – netnámskeið
Á námskeiðinu eru yfir 30 stutt og hnitmiðuð myndbönd þar sem ég fer yfir allt sem hvolpur þarf að læra fyrstu mánuðina, til dæmis:
✅ Að gera þarfir sínar úti
✅ Að læra að vera einn heima
✅ Að venjast bílnum
✅ Umhverfisþjálfun og félagsmótun
✅ Umhirðu og daglegar rútínur
…og margt fleira!
Af hverju skiptir þetta
máli?
Fyrstu vikurnar er mjög mikilvægur tími í lífi hvolpsins.
Félagsmótun hvolpa
nær aðeins til 12 vikna aldurs, sem þýðir að það sem þú gerir þá leggur grunninn að öruggum og félagslyndum hundi í framtíðinni.
- Rétt umhverfisþjálfun hjálpar hundinum að verða rólegur, sjálfsöruggur og minnkar líkur á stressi og gelti í framtíðinni
Af hverju netnámskeið?
Þú getur horft á myndböndin hvar og hvenær sem þér hentar, farið yfir efnið á þínum hraða og alltaf átt efnið til að rifja upp þegar þú
þarft á því að halda. Þannig færðu stuðning allan
hvolpatímann, ekki bara í einum tíma.
Ég bjó námskeiðið til
til að miðla sem flestum upplýsingum til nýrra
hvolpaforeldra og svara algengum spurningum sem ég fæ á
námskeiðum. Þetta er hagnýtt, aðgengilegt og hannað til að
gera uppeldið bæði auðveldara og skemmtilegra.
Hvað segja nemendur
Kría - Lagotto Romagnolo
Gott námskeið fyrir fólk sem er að eignast hvolp. Þjálfarinn hefur mjög djúpa þekkingu á þjálfun hvolpa og kemur því frá sér á mjög praktískan hátt. Getum svo sannarlega mælt með.
Kveðja Björn og Ragna Þóra
Hvað segja nemendur
Milla - Labrador
Frábært námskeið og þjálfari, sem við mælum með fyrir alla hvolpaeigendur. Við lærðum mikið og það er alltaf jafn gaman að mæta í skólann. Mikið af fræðandi efni sem við fengum aðgang að og nýtum mikið!
Kveðja
Freyr og fjölskylda