HundaAkademian

Næsta skref saman

Næsta skref saman

20.000 ISK
20.000 ISK
Uppselt

Næsta skref saman

Framhaldsnámskeið eftir grunn

Næsta skref saman - er fyrir hunda og eigendur sem vilja halda áfram að byggja upp skemmtilegt og öruggt samstarf eftir grunnnámskeið.

Í námskeiðinu vinnum við áfram með fókus, samskipti og sjálfstraust í fjölbreyttum aðstæðum með áherslu á jákvæða upplifun fyrir bæði hunda og eigendur.

  • Þú hefur gaman af að læra með hundinum þínum

  • Þú vilt meira sjálfstraust í nýjum aðstæðum

  • Þú vilt halda þjálfuninni skemmtilegri og fjölbreyttri

  • Þú vilt halda áfram eftir grunnnámskeið

  • Þú vilt meiri fókus í daglegu lífi

  • Þú vilt styrkja samstarfið enn frekar

  • Styrkja tengslin í gegnum leik og samvinnu

  • Jákvæða upplifun fyrir bæði hund og eiganda

  • Samskipti í fjölbreyttum aðstæðum

  • Fókus og samvinnu

  • Sjálfstraust og öryggi

  • Skemmtilegar æfingar fyrir daglegt líf

Þegar grunnurinn er kominn verður þjálfunin enn skemmtilegri fyrir bæði hunda og eigendur.

Upplýsingar um námskeiðið

Mikilvægar upplýsingar

Grunn-framhald 1 - 4 skipti- hver tími er ca. 55 mín. Þessir tímar fara fram bæði inni í sal og úti.

Mælt er með að hafa lokið grunnnámskeiði


Við kennum með jákvæðum og refsilausum aðferðum.


Við leggjum áherslu á að mynda ró hjá hundunum og allir hundar vinna á sínum hraða.

Hvað er kennt á námskeiðinu

Við förum yfir ýmsar æfingar og leiki.

  • Ganga fallega í taum
  • Augnsamband
  • Athygli á okkur í áreiti
  • Fimi og hreyfing
  • Láta vera - sjálfstjórn
  • Grípa og sleppa dóti
  • Trix æfingar

Getur fjölskyldan komið með?

Já, fjölskyldan er velkomin með á námskeiðið - börn mega ekki halda í tauminn úti.

Ég mæli alltaf með að allir æfi hundinn svo hann læri að vinna með öllum í fjölskyldunni.