hundaakademian

Krílahvolpatímar 4 skipti

Krílahvolpatímar 4 skipti

15.400 ISK
15.400 ISK
Uppselt

Krílahvolpatímar

Krílahvolpatímar eru fyrir hvolpa frá ca 9–16 vikna þar sem lögð er áhersla á örugga félagsmótun, ró og góð samskipti frá byrjun.

Í tímunum fá hvolparnir tækifæri til að læra að leika við aðra hvolpa, slaka á í nýjum aðstæðum og byggja upp sjálfstraust í rólegu og öruggu umhverfi.

Við vinnum með jákvæðum aðferðum sem hjálpa bæði hvolpum og eigendum að skilja hvort annað betur og skapa góðan grunn fyrir framtíðina.

  • Þú ert með nýjan hvolp á heimilinu

  • Þú vilt örugga félagsmótun frá byrjun

  • Þú vilt hjálpa hvolpinum að verða öruggari í nýjum aðstæðum

  • Þú vilt byggja góðar venjur frá fyrstu vikum

  • Þú vilt rólegra og skemmtilegra daglegt líf saman

  • Þú vilt skilja hvolpinn þinn betur

Af hverju byrja svona snemma?

Félagsmótunarskeið hvolpa er á tímabilinu frá um 3–12 vikna aldri. Á þessum tíma eru þeir sérstaklega móttækilegir fyrir nýrri reynslu og því leggjum við áherslu á að byrja snemma með jákvæða umhverfisþjálfun.
Ungir hvolpar þurfa að upplifa nýja hluti á rólegan og öruggan hátt án þess að það verði of mikið í einu.

  • Leik og samskipti milli hvolpa

  • Örugga félagsmótun og umhverfisþjálfun

  • ró og slökun

  • sjálfstraust og öryggi í nýjum aðstæðum

Markmiðið er að hjálpa hvolpunum að verða öruggari með sig og draga úr líkum á óöryggi og hræðslu síðar meir.

Myndband út krílahvolpatíma

Upplýsingar um námskeiðið

Mikilvægar upplýsingar

  • Krílahvolpatímar eru fyrir hvolpa frá ca 9–16 vikna aldri
  • Hvolpar þurfa aðeins að hafa fengið fyrstu sprautuna til að geta tekið þátt
  • Við leggjum áherslu á rólegt og öruggt umhverfi fyrir bæði hvolpa og eigendur
  • Grunnnámskeiðið er hefðbundna námskeiðið sem mælt er með samhliða Krílahvolpatímum
  • Öll þjálfun byggir á jákvæðum aðferðum og nýjustu þekkingu á atferli og líðan hunda

Hvernig skrái ég mig í tímann?

Eftir greiðslu fá þátttakendur aðgang að Facebook hópi þar sem skráð er í tímana vikulega.

Sjá hóp: Krílahvolpahópur á Facebook

Leiðbeinandi birtir skráningu á mánudagskvöldum fyrir næsta laugardag og skráningarfrestur er til kl. 15 á föstudögum. Hóparnir eru síðan tilkynntir eftir það.

Klippikortið er geymt hjá hundaskólanum.

Einnig er hægt að kaupa staka tíma í Krílahvolpatímana. Sendið okkur skilaboð og við hjálpum ykkur að velja hóp sem hentar hvolpinum ykkar best.

Stakur tími kostar 4.200 kr.

Við mælum með...

Við mælum með að skrá hvolpa bæði í Krílahvolpatíma og Grunnnámskeið samhliða til að byggja upp góðar venjur, örugga félagsmótun og rólegt samstarf frá byrjun.

Einnig er vinsælt að para Krílahvolpatímana við netnámskeiðið Uppeldi hvolpa fyrir eigendur sem vilja meiri stuðning og leiðsögn fyrstu vikurnar með hvolpinn.

Afsláttur er veittur þegar námskeið eru keypt saman.