hundaakademian
NoseWork námskeið
NoseWork námskeið
NoseWork er nýjasta æðið í hundaheiminum, sem gengur út á að nota þefskyn hundsins með því að leita að lykt í ílátum, ílátaleit og efnaleit (svona eins og lögreglu- og fíkniefnahundar læra).
Þessi þjálfun ýtir undir hið stórkostlega þefskyn hunda með því að nýta áhuga þeirra á að leysa verkefni. Nose Work hentar hundum af öllum stærðum og gerðum og er hannað fyrir þá sem leita að rólegu verkefni sem veitir bæði hundum og eigendum þeirra frábæra umbun. Með því að nýta einfalda leitarhæfileika hundsins byggir þjálfunin upp sjálfstraust, losar um andlega og líkamlega orku og styrkir tengslin milli hunds og eiganda. Allar hundategundir geta verið með og eru velkomnar.
Share

Upplýsingar um námskeiðið
Uppbygging námskeiðs
Námskeiðið er einu sinni í viku í 4 skipti, hver tími er 1,5 klst.
Í hverjum tíma er farið yfir mismunandi verkefni og æfingar þar sem hver hundur fær góðan tíma til að framkvæma æfinguna með eiganda sínum undir leiðsögn þjálfara.
Hvernig leit er kennd?
Förum fyrir þrjú leitar-moment
1. Ílátaleit - við byrjum á að nota pappakassa, þar sem lyktarfela er sett í einn (stundum fleiri) og hundur þarf að merkja kassann sem lyktin er í. Það má líkja þessu við leit á ferðatöskum eða kössum í tollinum.
2. Innanhúsleit - það eru svæði sem eru innanhúss og þetta er mest notaða leitin þegar við erum að æfa sjálf heima.
3. Utanhússleit - það er þegar við staðsetjum felu úti. Á námskeiðinu förum við yfir hvernig hiti, kuldi, raki, loftþrýstingu og vindur hefur áhrif á leitarsvæði og hvernig við hjálpum hundinum að vinna í mismunandi aðstæðum úti.
Þarf ég að koma með lyktina og áhöld á námskeiðið?
Þú færð lyktina, áhöld og það sem þarf á námskeiðinu og það er innifalið í námskeiðsgjaldinu.
Ég er með hund sem er hræddur við aðra hunda, get ég komið??
Þeir sem eru með hrædda hunda geta að sjálfsögðu komið, ef hundurinn á erfitt með að vera inni í sal með öðrum hundum þá er oftast best að hann bíður í bílnum og kemur svo inn og gerir æfingarnar. Það er alltaf bara einn hundur í leit hverju sinni og salurinn verður þannig uppsettur að óöruggur hundur á að geta unnið æfingarnar. Einnig er hægt að fá einkatíma í NoseWork, senda póst á hunda@hunda.is