1 af 2
1 af 3
  • Nýr hvolpur á heimilið

    .

    Netnámskeiðið Uppeldi hvolpa og Krílatímar eru frábær byrjun fyrir nýja hvolpaforeldra

    Netnámskeið 
  • Grunnur að góðu samstarfi

    .

    Grunnnámskeið - Fyrir hvolpa og unghunda með áherslu á rólegra og skemmtilegra samstarf.

    Grunnnámskeið 
  • Stórar tilfinningar


    Táninganámskeið - Fyrir hunda sem þurfa meiri ró, fókus og öryggi í daglegu lífi.

    Táninganámskeið 

Afhverju HundaAkadamían?


Við trúum því að góð samskipti og skilningur skapi betra samstarf milli hunda og eigenda.

Jákvæð og nútímaleg þjálfun

Við vinnum með hundinum — ekki gegn honum.

Ró og öryggi í fyrirrúmi

Hundar læra best þegar þeim líður vel.

Þjálfun fyrir daglegt líf

Markmiðið er rólegra og skemmtilegra samstarf.

Kynnast okkur
  • Kjarkur og Guðjón Davíð


    Við hlökkum núna til göngutúranna.

  • Atlas


    Ég skil hundinn minn miklu betur eftir námskeiðið.

  • Bósi og Ásta Björk


    Rólegra heimili og meiri samvinna

Netnámskeið


Lærðu á þínum tíma

Að læra á sínum tíma og hraða er eitthvað sem hentar mörgum í dag. Óháð því hvar þú býrð og hvernig vinnutíminn þinn er, þá getur þú alltaf tekið upp þráðinn þar sem þú hættir og haldið áfram.


Skoða námskeið

Algengar spurningar

Skráning hjá bæjarfélaginu

Námskeiðin hjá okkur eru viðurkennd hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur , HEF og hjá öllum öðrum bæjarfélegum sem veita afslátt af hundaleyfisgjöldum þegar lokið er við grunnnámskeiðið.

Fræðslustyrkir
Sum stéttarfélög, eins og t.d. VR og Efling styrkja hundanámskeið hjá okkur. Athugaðu með þitt stéttarfélag. Það heitir ýmist, fræðslusjóður, tómstundastyrkur eða varasjóður.

Skráning hunda á island.is

Hvernig við þjálfum.

Við notum eingöngu jákvæðar og refsilausar aðferðir í skólanum. Við leggjum áherslu á að hundinum líði alltaf vel og læri á sínum hraða.

Hvað er jákvæð þjálfun:

Jákvæð hundaþjálfun byggir á því að styrkja það sem hundurinn gerir rétt, í stað þess að refsa fyrir mistök.

Með notkun verðlauna eins og matarbita, leikja eða hrósa lærir hundurinn að tengja góða hegðun við jákvæða upplifun. Þannig eykst vilji hans til að endurtaka góðu hegðunina og sambandið milli hunds og eiganda verður traustara og jákvæðara.

Hvenær er best að byrja?

Við tökum á móti hvolpum í krílahvolpatíma frá um 9 vikna aldri og þau geta svo byrjað á grunnnámskeiði frá 11 vikna aldri.

Þó hvolparnir séu ungir á þessum aldri er námskeiðið sett upp með þarfir þeirra í huga. Fyrstu tímarnir eru rólegir og auðveldir, þar sem áherslan er meðal annars á slökun, sjálfstjórn og að byggja upp góða tengingu og samskipti milli hunds og eiganda.

Við förum yfir mikilvæga grunnþætti sem gagnast hvolpum strax á fyrstu vikunum heima, eins og að læra að hlusta, ná ró og takast á við nýjar aðstæður á jákvæðan hátt.

Miklar pásur eru teknar á milli æfinga og við gefum okkur góðan tíma til að spjalla saman og svara spurningum. Reynslan hefur sýnt okkur að það skilar sér einstaklega vel að byrja snemma — bæði til að byggja upp öryggi og góðar venjur og til að fyrirbyggja ýmis vandamál síðar meir.

Minn hvolpur er ekki fullbólusettur má hann samt mæta?

Já, Það dugar að hvolpurinn hafi fengið fyrstu bólusetningu til að geta byrjað á námskeiðum hjá okkur.

Við erum með inni aðstöðu sem er þrifin og sótthreinsuð reglulega og á grunnnámskeiðum hefur hver hundur sitt eigið svæði. Hvolparnir eru því ekki í mikilli nálægð hver við annan í tímunum og eigendur ráða sjálfir hvort þeir leyfa leik og samskipti fyrir eða eftir tíma.

Fyrsta bólusetningin veitir ákveðna vörn og næstu sprautur styrkja hana enn frekar. Á sama tíma er mikilvægt að muna að félagsmótun og umhverfisþjálfun hefst strax á fyrstu vikum hvolpsins.

Hvolpar þurfa að fá tækifæri til að kynnast heiminum á jákvæðan og öruggan hátt — heyra ný hljóð, sjá ólíkt fólk og venjast því að vera í kringum aðra hunda. Við mælum þó með að bíða með hundasvæði og ókunnuga hunda þar til bólusetningum er lokið.

Reynslan sýnir að hvolpar sem fá litla umhverfisþjálfun fyrstu mánuðina geta orðið óöruggari síðar, sérstaklega þegar þeir fara að nálgast kynþroska. Þetta á sérstaklega við um smærri hunda sem fara oft fyrr á kynþroska, jafnvel um 5–6 mánaða aldur.

Markmiðið hjá okkur er alltaf að byggja upp öruggan, sjálfstæðan og rólegan hund með jákvæðri og nútímalegri þjálfun

Má fjölskyldan koma með?

Já, fjölskyldan er hjartanlega velkomin á námskeiðin hjá okkur og börn mega að sjálfsögðu koma með.

Til að skapa rólegt og öruggt námsumhverfi fyrir bæði hunda og fólk biðjum við þó alla að fylgja nokkrum einföldum reglum:

• Börn mega ekki halda á taumnum. Þetta er mikilvægt öryggisatriði fyrir bæði barn og hund.

• Ekki hlaupa um salinn eða fara að öðrum hundum án leyfis eigenda.

• Við biðjum einnig um að hundarnir fái næði til að læra í tímunum. Það er því best að forðast mikið klapp, knús og truflun meðan á æfingum stendur, þar sem hvolparnir eru nú þegar að vinna úr miklu áreiti.

Að sjálfsögðu eiga hundarnir samt að fá ást og hlýju heima — í rólegheitum og jafnvægi.

Gott getur verið að taka með eitthvað fyrir börnin að dunda sér við, þar sem hundaskólinn er oft mjög spennandi fyrstu mínúturnar en síðan getur biðin orðið löng fyrir þau yngstu.

Þjálfið þið allar hundategundir?

Já, við þjálfum allar hundategundir.

Grunnurinn í hegðun og námi er í raun sá sami hjá öllum hundum, þó einstaklingar og tegundir geti haft mismunandi hvata, orkustig og áhuga á að læra.

Við leggjum því áherslu á að vinna með hvern hund út frá hans eigin persónuleika og styrkleikum.

Flestir hundar eiga það sameiginlegt að vera fyrst og fremst heimilishundar og þar liggur sérstaða HundAkademíunnar. Markmið okkar er að hjálpa eigendum að byggja upp rólegan, öruggan og góðan heimilishund sem líður vel með okkur í daglegu lífi.

Fyrir þau sem hafa áhuga á meira sérhæfðri þjálfun er síðan hægt að bæta við sérnámskeiðum síðar, allt eftir því hvaða verkefni eða vinnu þið viljið stefna að með hundinum

  • Skuggi - Poodle

    Þetta er miklu skemmtilegri nálgun en var áður kennt.
    Dagný.

  • Tumi - Havanese

    Mjög þægilegt og gott andrúmsloft . Mæli hiklaust með ykkur.
    Sif.

  • Kári - White Swiss Shepherd

    Frábært námskeið sem kennir manni að fá hundinn með sér í lið.
    Sandra.