Um skólann

Um HundaAkademíuna

HundaAkademían er vettvangur fyrir hundaeigendur og hundavini þar sem boðið er upp á fjölbreytt námskeið og þjónustu fyrir hunda og fjölskyldur þeirra.

Okkar nálgun

Við vinnum með líkamstjáningu og merkjamál hundsins og lærum þannig að skilja betur hvernig hundunum okkar líður í mismunandi aðstæðum.

Markmiðið er ekki fullkominn hundur — heldur rólegra og skemmtilegra samstarf þar sem bæði fólk og hundar njóta sín saman.

Við vinnum með jákvæðum aðferðum þar sem skýr samskipti, ró og öryggi eru í fyrirrúmi og byggjum kennsluna á nýjustu þekkingu á atferli og líðan hunda.

Námskeið og aðstaða

Námskeiðin hjá okkur eru viðurkennd af Heilbrigðiseftirlitinu og veita grunnnámskeið afslátt af hundaleyfisgjöldum.

Við erum staðsett á Skemmuvegi 40 í Kópavogi þar sem við erum með aðstöðu fyrir fjölbreytt námskeið og rólegt vinnuumhverfi fyrir hunda og eigendur.

 

Við viljum hjálpa hundum og eigendum að skilja hvort annað betur og njóta daglegs lífs saman.

 

Eigandi

Þórhildur Kristjánsdóttir

Hundaþjálfari, NoseWork, Sporaleit og atferlisráðgjafi.

Það er eitthvað ólýsanlegt við tenglsin sem myndast milli manns og hunds.

Hundar eru ekki bara félagar - þeir eru fjölskyldumeðlimir, börnin okkar, vinir og stundum okkar bestu kennarar.

Hundaþjálfari og hvolpamamma skólans

Villa Birgisdóttir

Að vinna með hundum snýst um að skilja þá, byggja upp traust og hjálpa þeim að finna sinn stað í fjölskyldunni og samfélaginu.

Hundaþjálfari

Alexandra Sól Jóhannsdóttir

Fyrir mér er ekkert meira gefandi en að aðstoða eigendur að takast á við áskoranir og sjá hundinn öðlast sjálfstraust, ró og blómstra vegna rétts uppeldis og þjálfunar.

Hundaþjálfaranemi

Valdís Rós Bjarnadóttir

Hundar geta bætt líf okkar á svo marga vegu, þeir kenna okkur þolinmæði og skilyrðislausa ást og trúi ég því að við eigum að gera það sama fyrir þá.