hundaakademian
Táninganámskeið
Táninganámskeið
Stórar tilfinningar
Táninganámskeiðið er fyrir hunda sem þurfa meiri hjálp við ró, fókus og skemmtilegt samstarf í daglegu lífi.
Á unghundaárunum breytast margir hundar hratt og það sem gekk vel áður getur allt í einu orðið erfiðara. Í námskeiðinu leggjum við áherslu á að hjálpa hundum og eigendum að byggja upp öryggi, sjálfstraust og betri samskipti í rólegu og jákvæðu umhverfi.
Námskeiðið er 9 klst í heildina sem skiptist yfir á 6 skipti og hver tími er 90 mín.
Share

Hentar vel ef ....
-
Þú vilt betra samstarf saman
-
Þú vilt skilja hundinn þinn betur
-
Þú vilt meira jafnvægi í daglegu lífi
-
Hundurinn á erfitt með fókus
-
Göngutúrar eru orðnir stressandi
-
Hundurinn verður fljótt spenntur
Á námskeiðinu leggjum við áherslu á.
-
Vinna með spennu án þess að missa tenginguna
-
Skemmtilegar æfingar fyrir daglegt líf
-
Samskipti og samvinnu
-
Ró og slökun
-
Fókus í kringum áreiti
-
Sjálfstraust og öryggi
Stórar tilfinningar þurfa ekki harðari stjórn — heldur meiri skilning, öryggi og skýr samskipti.
Upplýsingar um námskeiðið
Mikilvægar upplýsingar
Hentar fyrir allan aldur hunda með stórar tilfinningar.
Einungis kennt með jákvæðum og refsilausum aðferðum.
Við leggjum mikla áherlsu á rólegt vinnuumhverfi.
Hvað er farið yfir á námskeiðinu
Æfingar sem við förum meðal annars yfir.
Slaka á í bælinu
Hvernig við getum afnæmt triggera
Mæta hundum og öðru áreiti
Slökun í áreiti.
Andleg örvun
Fjarlægðastjórnun, t.d. að stoppa á hlaupum.
Væntingastjórnun, venja hundinn á hvað gildir í mismunandi aðstæðum. Það er t.d. ekki alltaf party og stuð þótt við förum á nýjan stað.
Góðar venjur og sjálfstjórn, sumt vill maður bara að hundurinn gerir sjálfkrafa án þess að við þurfum að skipa fyrir.
Undirbúningur fyrir innkall og æfingar
Athyglis æfingar.
Taumganga og taumvinna.
Spor og aðrar leita æfingar
Getur fjölskyldan komið með?
Já, fjölskyldan er velkomin með, hver hundur hefur lokað hólf til að vinna í og þar er nóg pláss fyrir 3-4 manneskju með.
Hundurinn minn er hræddur við aðra hunda, hentar þetta námskeið fyrir hann?
Það er oft mismunandi hvernig við túlkum hræðslu hjá hundum, ef hundurinn á erfitt með að mæta öðrum hundum í taum úti í göngutúr en virðist umbera þá í lausagöngu þá geta þeir oftast verið með í tímunum. Ef að hundurinn getur engan veginn verið með í tímunum þá getum við alltaf fært hann yfir í einkatíma.
Hundar eiga ekki að hittast á þessu námskeiði og legg ég mikla áherslu á að virða þeirra persónulega rými, þeir umbera oftast hvern annan í salnum inni í hólfunum.