Endurgreiðslustefna

1. Skilmálar

Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum og þjónustu HundaAkademíunnar & 4 hundar slf. til neytenda. Með kaupum og greiðslu teljast skilmálarnir samþykktir.


2. Skilgreiningar

Seljandi: HundaAkademían & 4 hundar slf., kt. 510325-1840
Kaupandi: Sá aðili sem skráður er fyrir kaupum
Kaupandi skal vera a.m.k. 16 ára


3. Skilaréttur – vörur

Kaupandi hefur 14 daga frest til að hætta við kaup á vörum keyptum í vefverslun, í samræmi við lög um fjarsölu.

Skilyrði:

  • Vara sé ónotuð
  • Í upprunalegum, óskemmdum umbúðum
  • Kvittun fylgi

Frestur byrjar við móttöku vöru.

Endurgreitt er innan 14 daga frá móttöku skilavöru, að uppfylltum skilyrðum.

Kaupandi greiðir kostnað við skil, nema:

  • vara sé gölluð
  • röng vara hafi verið send

4. Afhending og flutningur

Pantanir eru afgreiddar næsta virka dag.

Ef vara er ekki til verður haft samband.

Seljandi ber ábyrgð á vöru þar til hún hefur verið afhent kaupanda.
Um afhendingu gilda jafnframt skilmálar flutningsaðila (Dropp).


5. Verð og greiðslur

Öll verð eru með 24% vsk.
Sendingarkostnaður bætist við fyrir greiðslu.

Greiðsluleiðir:

  • Kreditkort (Visa, Mastercard)
  • Millifærsla
  • Greiðslugátt Teya

6. Netnámskeið

Hægt er að hætta við kaup á netnámskeiði innan 7 daga, að því gefnu að aðgangur að efninu hafi ekki verið nýttur.

Þegar efni hefur verið opnað fellur réttur til endurgreiðslu niður.


7. Staðnámskeið

Námskeiðsgjöld eru ekki endurgreidd nema:

  • við langvarandi veikindi (með vottorði)
  • ef námskeiði er aflýst

Afbókun:

  • skal berast skriflega minnst 7 dögum fyrir upphaf
  • staðfestingargjald er ekki endurgreitt

8. Eignarréttur

Vara er eign seljanda þar til hún hefur verið greidd að fullu.


9. Ábyrgð og fyrirvarar

Upplýsingar á vef eru birtar með fyrirvara um villur.
Seljandi áskilur sér rétt til að hætta við pantanir ef vara er ekki fáanleg.


10. Lög og varnarþing

Um skilmála gilda íslensk lög.
Ágreiningur er rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.