Hvolpurinn minn glefsar – af hverju gerir hann það og hvað get ég gert?
Hvolpurinn minn glefsar, afhverju gerir hann það og hvað get ég gert?
Þetta er líklega ein algengasta setningin sem ég heyri frá nýjum hvolpaeigendum.
Margir verða ráðþrota þegar litli sæti hvolpurinn breytist allt í einu í lítið „krókódílaskrímsli“ sem hangir í buxnaskálmum, höndum og ökklum.
Góðu fréttirnar eru þær að í langflestum tilfellum er þetta eðlilegur hluti af þroska hvolpsins.
En...
Það þýðir ekki að þú eigir bara að þola það.
Við getum kennt hvolpinum að velja aðra hegðun.
Af hverju glefsa hvolpar?
Áður en við reynum að breyta hegðuninni þurfum við fyrst að skilja af hverju hún á sér stað. Hundar gera ekki hluti til að vera óþekkir – þeir hegða sér á þann hátt sem þjónar einhverjum tilgangi eða skilar þeim einhverju verðmætu. Hvolpar geta glefsað af ýmsum ástæðum og því er lausnin ekki alltaf sú sama.
Þess vegna spyr ég alltaf fyrstu spurningarinnar:
„Hvað fær hvolpurinn út úr þessari hegðun?“
Þegar við finnum svarið verður miklu auðveldara að velja réttu lausnina.
Algengustu ástæðurnar
-
Forvitni
Hvolpar skoða heiminn með munninum. Það er eðlilegt að þeir glefsi, naga og taki hluti upp til að kanna áferð, lykt og bragð.
-
Of mikil örvun og æsingur
Þegar hvolpur verður of æstur eða fær of mikið áreiti getur hann átt erfitt með að stjórna sér. Þá eykst glefsið oft og hann getur farið að hanga í höndum, fötum eða ökklum.
-
Athygli
Hvolpar læra fljótt hvaða hegðun fær viðbrögð frá okkur. Ef glefsið leiðir til þess að við tölum, hreyfum okkur eða förum að leika getur hegðunin óvart styrkst.
-
Tanntaka
Þegar hvolpurinn fer að fá fullorðinstennur geta gómar verið aumir og þörfin fyrir að naga aukist. Venjulega á milli 4 - 7 mánaða
-
Ofþreyta
Þreyttir hvolpar verða oft ofuræstir. Ef hvolpurinn hefur verið vakandi of lengi getur hann farið að glefsa meira, hlaupa um og átt erfitt með að róa sig.
-
Leikur
Hvolpar elska að leika sér og nota munninn mikið í leiknum. Þeir hafa þó ekki alltaf lært að greina á milli þess hvað má glefsa í og hvað ekki.
Hvað á ekki að gera?
-
❌ Búa til hljóð
Hjá sumum hvolpum geta hávær viðbrögð aukið æsing og gert glefsið enn meira spennandi.
-
❌ Ýta honum frá
Sumir hvolpar geta túlkað það sem leik eða spennandi samskipti. Þá getur æsingurinn aukist og glefsið orðið meira.
-
❌ Hlaupa undan
Hröð hreyfing getur orðið hluti af leiknum og hvatt hvolpinn til að elta og glefsa enn meira.
-
❌ Skamma
Kennir honum ekki hvað hann á að gera í staðinn og getur aukið óöryggi og streitu.
-
❌ Taka utan um trýnið
Getur skapað neikvæða tengingu við hendur og snertingu í kringum höfuðið. Það getur dregið úr trausti og gert umhirðu, skoðun og meðhöndlun erfiðari síðar á ævinni.
-
❌ Slá á nefið
Hvolpurinn lærir ekki hvað hann á að gera í staðinn. Höggið kemur oft eftir að glefsið er yfirstaðið og getur skapað óöryggi og neikvæða tengingu við hendur.
Skref fyrir skref – svona myndi ég vinna með hvolp sem glefsar
Það er engin ein töfralausn við hvolpaglefsi.
Áður en við byrjum að vinna með hegðunina þurfum við að skilja af hverju hvolpurinn glefsar.
Þegar við höfum fundið orsökina getum við kennt honum nýjar og betri leiðir til að eiga samskipti við okkur.
Hér fyrir neðan eru þau skref sem ég myndi vinna eftir ef hvolpur kæmi til mín með þetta vandamál.
Skrefin í þjálfun
-
Skref 1 - Byrjaðu á að fylgjast með mynstrinu
Áður en þú reynir að breyta hegðuninni skaltu fylgjast með henni í nokkra daga.
Skrifaðu hjá þér:
- Hvenær gerist glefsið?
- Hvað gerðist rétt áður?
- Hversu lengi hafði hvolpurinn verið vakandi?
- Hafði hann farið í göngutúr?
- Hafði hann fengið þefverkefni eða leik?
- Glefsar hann í alla eða aðeins einn einstakling?
Þessar upplýsingar gefa oft lykilinn að lausninni.
-
Skref 2 - Passaðu að hvolpurinn fái næga hvíld
Ungir hvolpar þurfa yfirleitt 18–20 klukkustunda svefn á sólarhring.
Mjög margir hvolpar sem virðast "óþekkir" eru einfaldlega orðnir yfirþreyttir.
Ágætis regla: eftir ca. 1 klst í vöku er kominn tími á hvíld.
Búa til svefn rútínu fyrir hvolpinn, rólegt afmarkað svæði þar sem hann getur hvílst án truflunar.
-
Skref 3 - Verðlaunaðu rólega nálgun
Hafðu verðlaun nálæg eða á þér.
Í hvert skipti sem hvolpurinn nálgast þig rólega:
- hrósaðu með rólegri röddu,
- settu nokkra nammibita á gólfið,
- leyfðu honum að leita.
Markmiðið er að hann fari að tengja það að koma til þín við rólega leit á gólfinu í stað þess að hoppa upp eða glefsa.
Reyndu að ná þessum augnablikum áður en hvolpurinn byrjar að glefsa. Það er mun auðveldara að kenna rólega hegðun en að reyna að stöðva glefsið þegar það er byrjað.
Af hverju virkar þetta?
Með þessu breytum við væntingum hvolpsins. Hann fer smám saman að leita eftir nammi á gólfinu í stað þess að hoppa upp eða glefsa í hendur og föt. -
Skref 4 - Verðlaunaðu allt sem þú vilt sjá meira af
Ekki bíða eftir að hann geri eitthvað "stórt".
Verðlaunaðu þegar hann:
- liggur rólegur í bælinu,
- horfir á þig,
- sest sjálfur,
- velur leikfang,
- slakar á.
Því oftar sem þú nærð þessum augnablikum, því hraðar byggist ný hegðun upp.
Af hverju virkar þetta?
Hvolpar eru stöðugt að læra á heiminn. Þeir prófa sig áfram og komast fljótt að því hvaða hegðun skilar þeim einhverju sem þeir vilja – hvort sem það er athygli, leikur, nammi eða önnur jákvæð upplifun. Með því að verðlauna þá hegðun sem þú vilt sjá meira af eru meiri líkur á að hvolpurinn endurtaki hana. -
Skref 5 – Hjálpaðu hvolpinum að ná ró áður en hann fer yfir þolmörkin
Reyndu að grípa hvolpinn áður en hann verður of æstur. Ef þú þekkir mynstrið og veist að hann fer oft í „krókódílaskap“ á ákveðnum tíma dags geturðu boðið honum rólegt verkefni rétt áður, eins og þefleit, sleikimottu eða nagbein. Það er oft auðveldara að fyrirbyggja glefsið en að reyna að stöðva það þegar hvolpurinn er orðinn of æstur.
-
Skref 6 - Gefðu honum verkefni
Margir hvolpar hafa mikla þörf fyrir að naga.
Bjóddu upp á:
- góð nagbein/nagdót
- þefverkefni,
- sleikimottu,
- fylltan Kong,
- reipitog með leikfangi.
Þannig fær hann viðeigandi leið til að nota munninn.
Af hverju virkar þetta?
Þegar hvolpurinn fær viðeigandi heilaverkefni minnkar oft þörfin fyrir að glefsa. -
Skref 7 - Ef hvolpurinn glefsar
Ef hvolpurinn fer að glefsa:
- segðu sem minnst,
- forðastu að ýta honum frá þér,
- snúðu þér frá eða fjarlægðu þig rólega,
- Reyndu að halda líkamanum rólegum og forðastu snöggar hreyfingar eða hávær viðbrögð. Því minna spennandi sem aðstæðurnar verða, því auðveldara á hvolpurinn með að róast.
- gefðu honum nokkrar sekúndur til að róast.
Þegar hann kemur aftur rólegur geturðu strax byrjað að verðlauna þá hegðun sem þú vilt sjá.
Markmiðið er að glefsið þýðir ekki skemmtileg viðbrögð en róleg hegðun geri það.
Afhverju virkar þetta?
- Glefsið hættir að skila athygli og spennandi viðbrögðum.
- Hvolpurinn fær tækifæri til að ná ró.
- Róleg hegðun verður leiðin að samskiptum og verðlaunum.
-
Skref 8 - Kenndu honum að hendur eru öruggar
Hendur eiga að boða öryggi.
Forðastu að nota þær til að grípa, halda eða refsa.
Í staðinn geta þær:
- fært mat,
- hafið leik,
- klappað rólega þegar hvolpurinn er afslappaður. Þannig byggist upp jákvæð tenging við snertingu.
Markmiðið er að hendur þínar verði tákn um öryggi, ró og góða hluti. Þannig byggist upp traust sem nýtist ykkur alla ævi.
Við erum ekki að refsa hvolpinum fyrir að glefsa – við erum að kenna honum að róleg hegðun er besta leiðin til að fá það sem hann vill.
Hvolpaglefs-dagbókin
Hjálpar þér að finna mynstrið á bak við glefsið.
Skráðu svefn, virkni og aðstæður í nokkra daga og sjáðu hvort glefsið tengist til dæmis þreytu, æsing eða ákveðnum aðstæðum.
Því betur sem þú skilur hegðunina, því auðveldara verður að velja réttu lausnina.
Algengar spurningar
Hvers vegna glefsar hann bara í mig?
Hvers vegna glefsar hvolpurinn bara í mig?
Það er mjög algengt að hvolpur glefsi meira í einn einstakling á heimilinu en aðra. Það þýðir ekki að hvolpurinn sé „á móti“ þeirri manneskju eða að hún hafi gert eitthvað rangt.
Hundar læra fljótt hvernig mismunandi fólk bregst við þeim. Einn einstaklingur getur til dæmis:
- hreyft sig meira,
- talað meira,
- farið oftar í leik,
- eða brugðist hraðar við þegar hvolpurinn glefsar.
Fyrir hvolpinn verða þessi viðbrögð oft áhugaverð og því getur hann farið að leita meira í þann einstakling.
Stundum sjáum við líka að hvolpar glefsa meira í þann sem sinnir þeim mest. Sá aðili gefur mat, fer í göngutúra, leikur og eyðir meiri tíma með hvolpinum. Það þýðir einfaldlega að fleiri tækifæri skapast fyrir glefsið að koma fram.
Mikilvægast er að muna að þetta er ekki spurning um yfirráð eða virðingarleysi. Í langflestum tilfellum er hvolpurinn einfaldlega að endurtaka hegðun sem hefur áður leitt til einhverra viðbragða eða samskipta.
Markmiðið er því ekki að refsa hvolpinum heldur að kenna honum að róleg nálgun, fjórar loppur á gólfinu og kurteis samskipti séu það sem skilar honum athygli og samveru.
Ef hvolpurinn er farinn að glefsa svo fast að þú ert farin(n) að kvíða því að vera með honum eða forðast ákveðnar aðstæður skaltu leita aðstoðar sem fyrst. Því fyrr sem við grípum inn í, því auðveldara er yfirleitt að breyta hegðuninni.
Hvenær ætti ég að hafa áhyggjur?
Hvenær ætti ég að hafa áhyggjur?
Flest hvolpaglefs er eðlilegur hluti af þroska og minnkar þegar hvolpurinn fær nægan svefn, viðeigandi verkefni og lærir smám saman hvað hann má bíta í.
Í sumum tilfellum er þó ástæða til að leita sér aðstoðar.
Hafðu samband við hundaþjálfara eða atferlisráðgjafa ef:
- Hvolpurinn bítur fast og veldur reglulega áverkum.
- Glefsið virðist aukast þrátt fyrir markvissa þjálfun.
- Hvolpurinn stífnar, urrar eða sýnir önnur merki um hræðslu eða vanlíðan áður en hann bítur.
- Hegðunin kemur skyndilega fram hjá hvolpi sem hefur ekki áður sýnt hana.
- Þú átt erfitt með að stjórna aðstæðum eða finnur fyrir óöryggi.
Hafðu samband við dýralækni ef:
- Hegðunin breytist skyndilega án augljósrar ástæðu.
- Þú grunar að hvolpurinn sé með verki eða líði illa.
- Glefsið tengist snertingu á ákveðnum líkamshluta.
- Hvolpurinn sýnir önnur einkenni eins og lystarleysi, slappleika eða breytingar á hegðun.
Mundu: Markmiðið er ekki að bíða þar til vandamálið verður alvarlegt. Því fyrr sem þú færð ráðleggingar sem byggja á jákvæðri þjálfun og velferð hundsins, því auðveldara er yfirleitt að leysa vandann.
Ef þú ert í vafa skaltu frekar leita ráðgjafar of snemma en of seint. Lítil breyting á fyrstu mánuðunum getur skipt sköpum fyrir hegðun hundsins síðar á lífsleiðinni.
Á ég að segja NEI?
Á ég að segja „nei“?
Það er eðlilegt að fyrsta viðbragðið sé að segja „nei!“ þegar hvolpurinn glefsar. En í flestum tilfellum kennir orðið eitt og sér hvolpinum ekki hvað þú vilt að hann geri í staðinn.
Hvolpar skilja ekki sjálfkrafa hvað „nei“ þýðir. Ef orðið er endurtekið oft án þess að hvolpurinn fái kennslu um æskilega hegðun getur það misst merkingu sína eða jafnvel orðið hluti af samskiptunum sem hvolpurinn sækist eftir.
Í stað þess að einblína á að stöðva hegðunina skaltu spyrja:
- Er hvolpurinn orðinn þreyttur?
- Vantar hann verkefni?
- Er hann orðinn of æstur?
- Hvað vil ég að hann geri í staðinn?
Þegar þú hefur fundið ástæðuna geturðu beint hvolpinum yfir í hegðun sem þú vilt sjá, til dæmis að naga nagdót, leita að nammi, fara í stutta rólega þjálfun eða leggja sig.
Markmiðið er ekki bara að fá hvolpinn til að hætta að glefsa – heldur að kenna honum betri leið til að tjá þarfir sínar.
Vissir þú? Ef hvolpurinn hættir að glefsa þegar þú segir „nei“ er það ekki endilega merki um að hann hafi lært hvað hann á að gera. Til að hegðunin breytist til framtíðar þarf hann líka að læra hvaða hegðun skilar honum árangri í staðinn.
Á ég að gefa frá mér hljóð?
Á ég að gefa frá mér hljóð þegar hvolpurinn glefsar?
Þú hefur eflaust heyrt ráð eins og að segja „Æ!“ eða gefa frá þér hátt væl þegar hvolpurinn glefsar. Hugmyndin byggir á því að hvolpar læri af systkinum sínum að bíta varlegar í leik.
Þó að þetta geti virkað hjá sumum hvolpum er það langt frá því að virka hjá öllum.
Hjá mörgum hvolpum hefur hljóðið þveröfug áhrif. Það getur aukið spennuna og gert eigandann enn meira spennandi. Fyrir hvolp sem er í miklum leikham getur það jafnvel orðið hluti af leiknum og hvatt hann til að halda áfram að glefsa.
Ef þú ákveður að prófa þessa aðferð skaltu fylgjast vel með viðbrögðum hvolpsins:
- Minnkar glefsið? Þá gæti aðferðin hentað þínum hvolpi.
- Eykst glefsið eða hvolpurinn verður enn æstari? Þá er betra að hætta og velja aðra nálgun.
Það er engin ein lausn sem hentar öllum hvolpum. Fylgstu með því hvernig hvolpurinn þinn bregst við og veldu þá leið sem hjálpar honum að ná ró og læra hvað þú vilt að hann geri í staðinn.
Hvenær hætta hvolpar að glefsa?
Hvenær hætta hvolpar að glefsa?
Það fer eftir hverjum hvolpi fyrir sig, en hjá flestum minnkar glefsið smám saman á fyrstu mánuðunum þegar þeir þroskast og læra betri leiðir til að eiga samskipti.
Glefsið er oft mest áberandi á aldrinum 8–16 vikna, þegar hvolpurinn:
- er að kanna heiminn með munninum,
- leikur sér með miklum æsing,
- fær nýjar tennur (4 - 7 mánaða)
- og hefur enn takmarkaða stjórn á tilfinningum sínum.
Hjá mörgum hvolpum fer glefsið að minnka verulega um 4–6 mánaða aldur, sérstaklega ef eigendur hafa kennt þeim frá upphafi hvað þeir mega bíta í, hjálpað þeim að ná nægum svefni og komið í veg fyrir að glefsið verði að vana.
Það er þó mikilvægt að muna að aldurinn einn leysir ekki vandamálið. Ef hvolpurinn fær sífellt tækifæri til að æfa glefsið getur hegðunin haldist lengur.
Góðu fréttirnar eru þær að hjá langflestum hvolpum er þetta tímabil tímabundið. Með þolinmæði, góðri stjórnun og jákvæðri leiðsögn minnkar glefsið yfirleitt smám saman og hverfur að lokum.
Markmiðið er ekki að bíða eftir að hvolpurinn „vaxi upp úr þessu“, heldur að hjálpa honum að æfa þá hegðun sem þú vilt sjá í staðinn.
Á ég að gefa nammi þegar hann glefsar?
Á ég að gefa nammi þegar hvolpurinn glefsar?
Margir hafa áhyggjur af því að þeir séu að verðlauna glefsið ef þeir rétta hvolpinum nammi eða nagdót þegar hann byrjar að bíta.
Svarið fer eftir hvernig og hvenær nammið er notað.
Ef þú réttir hvolpinum nammi til að beina honum yfir í aðra hegðun, eins og að leita að nammi á gólfinu, naga nagdót eða slaka á, ertu ekki að kenna honum að glefsa. Þú ert að hjálpa honum að velja hegðun sem hentar betur.
Markmiðið er ekki að verðlauna glefsið heldur að skapa tækifæri fyrir hvolpinn til að gera eitthvað annað sem uppfyllir sömu þörf.
Til dæmis geturðu:
- kastað nokkrum nammibitum á gólfið og leyft hvolpinum að leita,
- boðið honum nagdót ef hann virðist þurfa að naga,
- eða beint honum yfir í stutt þefverkefni eða rólega æfingu.
Ef hvolpurinn er orðinn mjög æstur eða þreyttur getur nammið líka hjálpað til við að rjúfa aðstæðurnar og beina athyglinni annað.
Samantekt
Ef það er eitt sem ég vona að þú takir með þér úr þessari grein, þá er það þetta:
Hvolpurinn þinn glefsar ekki til að vera óþekkur.
Hann er að kanna heiminn, leika sér, tjá þarfir sínar eða á erfitt með að stjórna spennu og þreytu. Glefsið er hegðun sem hefur ástæðu – og þegar við skiljum ástæðuna verður mun auðveldara að hjálpa hvolpinum.
Það verða dagar þar sem þér finnst eins og ekkert gangi og buxnaskálmarnir fá ekki frið. Það er eðlilegur hluti af hvolpatímanum.
Með nægum svefni, viðeigandi verkefnum, skýrri leiðsögn og smá þolinmæði lærir hvolpurinn smám saman hvað hann má bíta í og hvernig hann getur átt góð samskipti við fólkið sitt.
Ekki leitast við að vera fullkominn. Markmiðið er einfaldlega að hjálpa hvolpinum að taka eitt lítið skref í rétta átt á hverjum degi.
Stundum er stærsta skrefið ekki að stöðva hegðunina heldur að skilja hana.
Þar byrja raunverulegar breytingar.
Höfundur:
Þórhildur Kristjánsdóttir
Hundaþjálfari hjá HundaAkademíunni
Ég legg áherslu á jákvæða, vísindalega studda þjálfun sem byggir á velferð hundsins og góðu samstarfi milli hunds og eiganda.
Birt: 5. ágúst 2026
Þessi grein er byggð á reynslu úr þjálfun fjölmargra hvolpa og hundaeigenda ásamt nútíma rannsóknum á hegðun og námi hunda. Markmið hennar er að veita hagnýta og áreiðanlega fræðslu sem styður við velferð hundsins og styrkir samband hunds og eiganda.
Greinin er skrifuð í fræðsluskyni og kemur ekki í stað einstaklingsbundinnar ráðgjafar. Ef þú hefur áhyggjur af hegðun eða heilsu hundsins þíns skaltu leita til dýralæknis eða sérhæfðs hundaþjálfara.
Samanbrjótanlegt efni
Heimildir og rannsóknir
- American Veterinary Society of Animal Behavior (AVSAB).Humane Dog Training Position Statement.
- Wailani Sung, MS, PhD, DVM, DACVB.How to Stop a Puppy From Biting. PetMD.
- American Kennel Club (AKC).How to Stop Puppy Biting and Train Bite Inhibition.