Fara í efni

Krílahvolpatímar alla laugardaga

Einkatímar

Einkatímar henta hundum og eigendum sem vilja einstaklingsmiðaða leiðsögn og stuðning í rólegu og öruggu umhverfi.

Í einkatímum getum við unnið með það sem skiptir ykkur mestu máli hverju sinni — allt frá fyrstu skrefum með hvolpinn yfir í spennu, fókus og daglegar áskoranir.

  • Þú vilt meira jafnvægi og öryggi í daglegu lífi

  • Þú vilt vinna á ykkar eigin hraða

  • Þú vilt skilja hundinn þinn betur

  • Þú vilt einstaklingsmiðaða leiðsögn

  • Hundurinn á erfitt með fókus eða spennu

  • Göngutúrar eru orðnir erfiðir

Í einkatímum getum við meðal annars unnið með…


Að hjálpa hundinum að finna meiri ró og öryggi

Rólegri göngutúra og meiri fókus

Betri samskipti og samvinnu

Stuðning fyrir fyrstu skrefin með hvolp

Daglegt líf sem hentar bæði hundi og eiganda

Að vinna með áskoranir á rólegan og jákvæðan hátt

Markmiðið er ekki fullkominn hundur — heldur betri skilningur og rólegra daglegt líf saman.

Upplýsingar

Hvernig virka einkatímar?

Einkatímarnir eru einstaklingsmiðaðir og unnið er út frá þörfum hvers hunds og eiganda hverju sinni.

Við leggjum áherslu á rólegt og öruggt umhverfi þar sem hundurinn fær tíma og stuðning til að vinna á sínum hraða.

Kennt er með jákvæðum aðferðum sem byggjast á nýjustu þekkingu á atferli og líðan hunda með áherslu á skýr samskipti, öryggi og betra daglegt líf saman.

Staðsetning og tímar

Einkatímar fara fram í sal HundaAkademíunnar á Skemmuvegi 40 í Kópavogi þar sem lögð er áhersla á rólegt og öruggt vinnuumhverfi fyrir bæði hunda og eigendur.

Í sumum tilfellum eru heimavitjanir einnig í boði ef það hentar betur að vinna með aðstæður í nærumhverfi hundsins.

Tímalengd og verð

Einkatímar fara fram í Kópavogi og einnig er hægt að bóka tíma í gegnum síma eða Zoom ef það hentar betur.

Verðskrá
• 1 klst — 16.000 kr

• 1,5 klst — 24.000 kr

• 2 klst — 30.000 kr
Fleiri tímapakkar í boði.

Sendu okkur línu!