HundaAkademian

28 dagar - leikum og lærum

28 dagar - leikum og lærum

9.990 ISK
9.990 ISK
Uppselt

Leikum og lærum – 28 hvolpaverkefni

Leikur er ein besta leiðin til að kenna hvolpi.

Leikum og lærum er 28 daga netnámskeið fyrir hvolpa frá 8 vikna aldri þar sem þú færð eitt nýtt verkefni á dag. Verkefnin eru einföld, skemmtileg og markvisst uppbyggð til að styrkja tengslin á milli þín og hvolpsins, efla sjálfstraust hans og leggja grunn að góðum venjum til framtíðar.

  • vilt skemmtileg verkefni sem öll fjölskyldan getur tekið þátt í.

  • Vilt gefa hvolpinum góðan grunn fyrir framtíðina.

  • Vilt styrkja tengslin við hvolpinn frá fyrsta degi.

  • Ert með hvolp frá 8 vikna

  • Vilt kenna hvolpinum meira en bara „sitja“.

  • Vilt markviss verkefni sem taka aðeins nokkrar mínútur á dag.


  • Margir halda að ungir hvolpar séu of litlir til að læra. Sannleikurinn er sá að hvolpar geta lært frá því þeir koma á nýja heimilið. Þeir hafa styttri athygli en eldri hundar, en heilinn þeirra er einstaklega móttækilegur fyrir námi.


  • Þetta námskeið snýst ekki um fullkomna hlýðni. Það snýst um að eiga góðar stundir saman, kenna hvolpinum í gegnum leik og byggja upp traust, samvinnu og gleði við að læra.

Þú færð

  • 28 myndbönd – eitt verkefni á dag.
  • Skýrar leiðbeiningar og einföld verkefni.
  • Leiki sem efla sjálfstraust, líkamsvitund, samvinnu og einbeitingu.
  • Aðgang í 12 mánuði.
Efst á síðu

Afhverju 28 dagar?


Nýjar venjur byggjast upp með reglulegri endurtekningu. Með einu stuttu verkefni á dag verður auðvelt að skapa skemmtilega rútínu sem nýtist bæði þér og hvolpinum – og gerir námið að hluta af daglegu lífi.