hundaakademian
Uppeldi hvolpa - Netnámskeið
Uppeldi hvolpa - Netnámskeið
Uppeldi hvolpa
Uppeldi hvolpa er netnámskeið fyrir nýja hvolpaforeldra sem vilja byggja upp góðar venjur, ró og örugg samskipti frá fyrstu dögunum saman.
Á námskeiðinu förum við yfir fyrstu skrefin með hvolpinn á jákvæðan og hagnýtan hátt með áherslu á daglegt líf, skilning og góðan grunn fyrir framtíðina.
Einnig fylgir með þessu námskeiði fyrsti tíminn í krílahvolpatíma - þar sem hvolparnir læra að slaka á innan um hvern annan og leika sér fallega saman.
Share

Hentar vel ef…
-
Þú vilt byggja upp góðar venjur strax frá byrjun
-
Þú vilt stuðning sem þú getur unnið með á þínum hraða
-
Þú vilt rólegri og skýrari fyrstu vikur saman
-
Þú ert að fá hvolp í fyrsta sinn
-
Þú vilt góðan grunn frá byrjun
-
Þú vilt skilja hvolpinn þinn betur
Fyrstu vikurnar með hvolpi leggja grunninn að framtíðarsamskiptunum ykkar saman.
þetta er tíminn þar sem félagsmótun og lærdómur eiga sér stað og leggja grunninn að hans hegðun og samskiptum. Á þessu námskeiði lærir þú hvernig á að nýta þessar vikur til að kenna hvolpinum allt sem hann þarf að kunna, frá því að umgangast fólk, dýr og til að aðlagast umhverfi
sínu.
Námskeiðið tryggir að þú hafir verkfærin til að ala upp rólegan og glaðan fjölskyldumeðlim sem blómstrar í öllum aðstæðum.
Upplýsingar um námskeiðið
Uppbygging námskeiðs
Netnámskeiðið uppeldi hvolpa er skipt upp í 7 kafla með mismunandi áherslum,það eru um 40 stutt og hnitmiðuð myndbönd um allt það sem viðkemur hvolpa-uppeldi, þið getið hoppað á mili myndbanda sem þið viljið vina með hverju sinni.
Hversu lengi hef ég aðgang að námskeiðinu?
Þið hafið aðgang að námskeiðinu í 12 mánuði frá kaupdegi, það er hægt að hafa samband hunda@hunda.is ef þið viljið frá framlengingu að námsefninu.
Hvað er farið yfir á námskeiðinu?
Það er farið yfir mjög mörg atriði á þessu námskeiði og námskeiðið er byggt upp útfrá því sem þarf að kenna hvolpunum fyrstu vikurnar eftir að þeir koma til nýrrar fjölskyldu.
🐾 svefn og ró
🐾 umhverfisþjálfun
🐾 bit og nag
🐾 hreinlætisþjálfun
🐾 leik og tengslamyndun