hundaakademian

Taumgöngunámskeið

Taumgöngunámskeið

26.900 ISK
26.900 ISK
Uppselt

Taumgöngunámskeið

Að njóta þess að vera úti saman í göngutúr skiptir öllu máli. Ef hundurinn á það til að vera æstur, hræddur, of glaður, smá stressaður, eða hreinlega á bara eftir að læra að toga ekki í tauminn er þetta námskeið fyrir þig.
Stundum er það að labba, aðeins of spennandi svo hundurinn missir sig og togar nánast af þér hendina. Við vinnum með væntingastjórnun og slökun á þessu námskeiði ásamt taumgöngu. Að geta slappað af úti skiptir öllu máli til þess að fá góða taumgöngu.

Á námskeiðinu förum við vel í taumgönguna með því markmiði að hundurinn geti labbað með slakan taum, þefað í rólegheitum, að hann geti slappað af úti og nái að veita þér athygli þegar þess þarf.

Ath. að þetta er ekki hælgöngunámskeið, þótt við munum fara í gegnum æfingar sem fá hundinn til að labba við hliðina á þér.

Allir geta verið með hvort sem þú/hundurinn hefur áður farið á námskeið eða ekki.

Upplýsingar um námskeiðið

Uppbygging á námskeiði

Taumgöngunámskeið - 5 skipti, hver tími er í ca. 60 mín.

Kennt er bæði úti á túni fyrir framan skólann á Skemmuvegi 40, Kópavogi og inni í salnum.

Við byrjum alla tímana úti á túni og gerum æfingar þar, seinni hluti tímans fer fram inni í salnum þar sem við bætum við æfingum fyrir næsta tíma.

Hvað er kennt á námskeiðinu

Farið er yfir athyglisæfingar, taumvinnu, ganga með slakan taum, mæta áreiti og hælgöngu.

Má fjölskyldan koma með?

Já fjölskyldan er velkomin með í tímana, börn mega ekki halda í tauminn úti á túni. Æfingarnar inni í sal hefur hver hundur afmarkað svæði í lokuðu hólfi.

Taumar og búnaður

Hundar eiga að vera í beisli eða með breiða hálsól.

Taumlengd: 2 - 5 metra langur taumur.

Útdraganlegur (flexi-taumur) eru bannaðir á námskeiðinu.

Hálsól sem þrengir að öndunarveginum eða önnur tól sem geta meitt eða skaðað hundinn eru bönnuð í skólanum.

Slip-lead er bönnuð á námskeiðinu.